Veltek hefur undanfarið staðið fyrir reglulegum kynningarfundum þar sem fjölbreyttar velferðartæknilausnir eru kynntar fyrir áhugasömum aðilum. Fundirnir eru haldnir í gegnum Teams og eru öllum opnir sem vilja kynna sér nýjar lausnir og þróun á sviði velferðartækni.
Markmið fundanna er að efla þekkingu, auka sýnileika lausna og skapa vettvang fyrir samtal og miðlun reynslu á milli aðila innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu.
Næsti kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 10. apríl kl. 10:00, þar sem lausnin Dala.care verður kynnt. Dala.care er stafræn lausn sem styður við skipulag og samhæfingu þjónustu með því að tengja saman starfsfólk, þjónustuaðila og aðstandendur á einum stað.
Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í kynningunni eða vilja kynna lausnir eru hvattir til að skrá sig með því að senda tölvupóst á [email protected]
