Þann 13. janúar sl. fór fram ráðstefnan „Framtíðin er heima“ á vegum Icepharma þar sem sjónum var beint að þróun heilbrigðis- og velferðarþjónustu í takt við breyttar þarfir samfélagsins. Fulltrúi frá Veltek sótti ráðstefnuna sem var bæði áhugaverð og hvetjandi, og ríkur samhljómur var meðal þátttakenda um að nýta þurfi tækni markvisst til að styrkja velferðarþjónustu.
Á ráðstefnunni komu saman margir af máttarstólpum íslenska heilbrigðiskerfisins og fjölmargir sérfræðingar sem starfa að þróun og innleiðingu lausna í heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Fulltrúar frá Sjúkrahúsinu á Akureyri, þær Emilía Fönn Andradóttir, sérfræðingur í hjúkrun, og Eva Hilmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, MSc. fluttu erindið „Fjarheilbrigðisþjónusta: Tækifæri, áskoranir og framtíð heilbrigðisþjónustu á SAk“
Þær starfa á innkirtlamóttöku SAk og sinna eftirliti og göngudeildarþjónustu fyrir einstaklinga með sykursýki tegund I, sykursýki tegund II með flókna birtingarmynd og insúlínháða meðgöngusykursýki. Í erindi sínu, fjölluðu þær um markviss skref í hagnýtingu tækni í þjónustu við sjúklinga og hvernig fjarheilbrigðislausnir geta aukið öryggi, aðgengi og skilvirkni.
Skilaboð ráðstefnunnar endurspegla þá sýn sem Veltek vinnur eftir: Að velferðarþjónusta framtíðarinnar byggi á samþættingu tækni, fagþekkingar og notendamiðaðrar nálgunar. Til að þjónustan þróist í takt við stöðu og tíma þarf samvinnu opinberra aðila, fagfólks og nýsköpunarfyrirtækja. Vettvangur eins og þessi ráðstefna er mikilvægur hluti af þeirri vegferð.
Upptöku frá ráðstefnunni má nálgast hér
