Það eru sannarlega tímamót í innleiðingu velferðartækni á HSN Blönduósi, þar sem fyrsti gagnvirki Tover skjávarpinn var afhentur í tengslum við afmælishátíð Hollvinasamtaka sjúkrahússins. HSN er stoltur þátttakandi í Veltek, íslenska heilbrigðis- og velferðartækniklasanum, og gleður það okkur að miðla þessari nýjung sem styður við áframhaldandi þróun og nýsköpun í umönnun fólks.
Ferlið hófst með innleiðingu á Evondos lyfjaskammtara sem hafa reynst vel og skapað traustan grunn fyrir áframhaldandi innleiðingu á heilbrigðis- og velferðartækni. Með Tover skjávarpanum er stigið enn eitt mikilvægt skref í átt að persónubundinni og virkri umönnun.
Tover er gagnvirkur skjávarpi sem varpar leikjum og æfingum á borðflöt og bregst við hreyfingum notenda. Hann er sérstaklega hannaður með þarfir einstaklinga á hjúkrunar- og dvalarheimilum í huga, með það markmið að örva félagslega tengslamyndun, hreyfingu og þátttöku, allt sem stuðlar að bættum lífsgæðum.
RÚV heimsótti Blönduós í tilefni afhendingarinnar og sýndi frétt um hvernig Tover velferðarlausnin virkar. Þar mátti meðal annars sjá íbúa spreyta sig við gagnvirkt púsluspil, eitt af fjölmörgum leikjum og æfingum sem Tover kerfið býður upp á. Fréttina má horfa á hér á vef RÚV.