Skip to content

Veltek og Háskólinn á Akureyri tóku á móti alþjóðlegum samstarfshópi í verkefninu SelfCare.

Veltek, í samstarfi við Háskólann á Akureyri, tók nýverið á móti erlendum vinnuhópi sem er samstarfsaðili í verkefninu SelfCare, sem styrkt er af Northern Periphery and Arctic Programme.

Hópurinn samanstendur af fulltrúum frá Region Västerbotten í Svíþjóð og University of Limerick á Írlandi. Tekið var á móti hópnum á Akureyri þar sem þau fengu kynningu á starfsemi Háskólans á Akureyri og aðstöðu hans, auk þess sem vinnufundur verkefnisins hófst formlega.

Að loknum degi á Akureyri var haldið til Fjallabyggðar þar sem vinnustofan hélt áfram. Þar fengu gestirnir innsýn í samfélagið og þjónustu þess, meðal annars með þátttöku í vikulegum gönguhópi 60+, sem vakti mikla ánægju. Einnig gafst tækifæri til að skoða sveitarfélagið og kynnast staðháttum.

Veður lék við hópinn á meðan heimsókninni stóð og bætti það enn við jákvæða upplifun þátttakenda.

Næsta vinnustofa verkefnisins verður haldin í Ballyvaughan í Co, Clare á Írlandi í október næstkomandi.