Skip to content

Lyfjaskammtarar bæta öryggi og sjálfstæði í heimahjúkrun

Mynd: HSN

Notkun lyfjaskammtara hefur reynst mikilvæg viðbót í heimahjúkrun og styður við sjálfstæða búsetu fólks í eigin heimahúsum. Tækin tryggja að skjólstæðingar fái rétt lyf á réttum tíma og auka þannig bæði öryggi og gæði þjónustu.

Lyfjaskammtararnir virka þannig að hefðbundnar lyfjarúllur eru settar í tækið sem les upplýsingar af hverjum lyfjapoka og skammtar lyfin sjálfkrafa á réttum tíma. Tækin eru með bæði texta- og raddleiðbeiningum á íslensku og starfsfólk getur fylgst með notkun í gegnum miðlægt kerfi. Ef lyfjataka fer ekki fram eins og til er ætlast fær starfsfólk tilkynningu og getur brugðist við.

Frá því að lyfjaskammtarar voru teknir í notkun hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands árið 2022 hafa verið gefnir út rúmlega 130.000 lyfjapokar. Í dag eru 75 lyfjaskammtarar í notkun og að meðaltali eru gefnir um 186 lyfjapokar á dag.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands er aðili að Veltek og er þetta gott dæmi um hvernig innleiðing velferðartæknilausna innan samstarfsnetsins getur stutt við betri og öruggari þjónustu.

„Markmiðið var að bæta þjónustu við skjólstæðinga og nýta tíma starfsfólks betur í hjúkrun,“ segir Eva Björg Guðmundsdóttir, forstöðumaður heimahjúkrunar á Akureyri. „Við erum mjög ánægð með árangurinn. Skjólstæðingar upplifa aukið öryggi og starfsfólk fær meira svigrúm til faglegra verkefna.“

Árangurinn er einnig mælanlegur en meðferðarheldni er yfir 99,5%, sem telst afar góður árangur og undirstrikar mikilvægi slíkra lausna í framtíð heilbrigðisþjónustu.