Veltek er samstarfsvettvangur um þróun heilbrigðis- og velferðarþjónustu á Norðurlandi þar sem opinberir aðilar, sveitarfélög og einkaaðilar vinna saman að því að þróa nýjar og betri lausnir. Áhersla er lögð á hvernig tækninýjungar, aukin samvinna og samþætt þjónusta geti aukið öryggi, skilvirkni og gæði þjónustu við íbúa, ekki síst í dreifðum byggðum.
HSN einn af virkum þátttakendum í þessu samstarfi hefur nýlega hlotið 2,5 milljóna króna styrk frá Heilbrigðisráðuneytinu til kaupa á búnaði sem gerir kleift að sinna reglubundinni augnskimun hjá einstaklingum með sykursýki í heimabyggð. Með tilkomu búnaðarins, RetinaRisk, verður ekki lengur þörf á ferðum til Reykjavíkur fyrir þessa þjónustu, sem skiptir miklu máli fyrir íbúa á landsbyggðinni.
Að mati Veltek sýnir þessi styrkveiting vel hvernig markviss fjárfesting í velferðartækni getur haft bein og jákvæð áhrif á þjónustu við íbúa í dreifðum byggðum. Tæknilausnir á borð við augnskimunarbúnað, sálfræðiþjónustu í gegnum myndsímtöl og önnur stafræn úrræði gera fólki kleift að nálgast sérfræðiþjónustu án langra og kostnaðarsamra ferða, bæta lífsgæði og styðja við sjálfstæði einstaklinga.
Fyrr á árinu var einnig veittur styrkur til innleiðingar Memaxi-kerfis á Norðurlandi vestra. Kerfið tengir saman notendur, fjölskyldur og heilbrigðisstarfsfólk og stuðlar að auknu öryggi, betra upplýsingaflæði og virkari þátttöku notenda. Þá eru um 70 stafrænir lyfjaskammtarar í notkun í heimahjúkrun og á nokkrum heilsugæslustöðvum á Norðurlandi, sem hefur sýnt fram á aukið öryggi og bætt lífsgæði skjólstæðinga.
Veltek lítur á þessa þróun sem skýrt dæmi um hvernig samstarf, nýsköpun og tækni geta styrkt heilbrigðis- og velferðarþjónustu á landsbyggðinni og skapað raunverulegan ávinning fyrir bæði íbúa og starfsfólk.
