NPA Lead Partner communications course in Cork, Ireland

The SelfCare project manager attended the NPA communications course in Cork on 19 March.

This article is available in Icelandic only.

Verkefnastjóri NPA Verkefnisins SelfCare, sem Veltek og Hátindur eru þátttakendur í, tók þátt í mjög og fræðandi námskeiði á vegum NPA í Cork þann 19. mars sl.

Að hittast og kynnast fulltrúum hinna verkefnanna innan Interreg NPA fjölskyldunnar er alltaf mjög hvetjandi og gefandi. Þetta sýnir vel hvernig lýðræðisleg ferli virka á norðurslóðum og á heimskautasvæðinu.

image 1

Dagurinn var tileinkaður því að fá upplýsingar og innblástur um eftirfarandi atriðum:

  • Skýrslugerð og sérstaklega hvernig má kynna afurðir og niðurstöður verkefna. Skemmtileg hópæfing um hvaða þættir skipta mestu máli þegar kynna á afurðir verkefnisins.
  • Að virkja samstarfsaðila í sameiginlegri og skilvirkri samskiptastefnu. Skilningur á mikilvægi þess að hafa samskiptaáætlun fyrir verkefni.
  • Endurskoðun á þverlægum meginreglum og þátttöku ungs fólks með áherslu á IVY – sjálfboðaliðaverkefni Interreg – þar sem verkefni geta fengið hæfileikaríkt og áhugasamt ungt fólk styrkt í gegnum IVY.
  • Verkstæði um skýrslugerð verkefna – Hvernig hægt er að virkja samfélög og hagaðila með aðferðafræði „Living Lab“.

Allt í allt frábær dagur með frábæru fólki, fullt af nýjum hugmyndum og tækifæri til að efla tengslanetið innan Interreg NPA fjölskyldunnar.

image 2

Ljósmynd: InterregNPA_JeddaDesmond

Heimasíða SelfCARE

More news