Veltek’s regular online presentations of welfare technology solutions on Teams continue.
This article is available in Icelandic only.

Veltek hefur undanfarið staðið fyrir reglulegum kynningarfundum þar sem fjölbreyttar velferðartæknilausnir eru kynntar fyrir áhugasömum aðilum. Fundirnir eru haldnir í gegnum Teams og eru öllum opnir sem vilja kynna sér nýjar lausnir og þróun á sviði velferðartækni.
Markmið fundanna er að efla þekkingu, auka sýnileika lausna og skapa vettvang fyrir samtal og miðlun reynslu á milli aðila innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu.
Næsti kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 10. apríl kl. 10:00, þar sem lausnin Dala.care verður kynnt. Dala.care er stafræn lausn sem styður við skipulag og samhæfingu þjónustu með því að tengja saman starfsfólk, þjónustuaðila og aðstandendur á einum stað.
Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í kynningunni eða vilja kynna lausnir eru hvattir til að skrá sig með því að senda tölvupóst á hannasigga@veltek.is



