SelfCare – Alþjóðlegt samstarf um ábyrgð einstaklinga á eigin heilsu og velferð í dreifðum byggðum

Dagana 6.–8. maí sl. hittist samstarfshópur SelfCare verkefnisins í Saxnäs, suðurhluta Lapplands í Svíþjóð. Í hópnum eru fulltrúar frá háskólanum í Limerick á Írlandi, Region Västerbotten – Centre for Rural… Read More »SelfCare – Alþjóðlegt samstarf um ábyrgð einstaklinga á eigin heilsu og velferð í dreifðum byggðum

Dagana 6.–8. maí sl. hittist samstarfshópur SelfCare verkefnisins í Saxnäs, suðurhluta Lapplands í Svíþjóð. Í hópnum eru fulltrúar frá háskólanum í Limerick á Írlandi, Region Västerbotten – Centre for Rural Medicine í Svíþjóð, auk Veltek- HA og Fjallabyggðar frá Íslandi.

Heimsóknin var bæði fræðandi og áhrifarík. Hópurinn fékk einstaka innsýn í líf og menningu Sama, ásamt því að kynnast þeim áskorunum sem samískt samfélagið stendur frammi fyrir í tengslum við aðgengi að velferðarþjónustu. Einnig voru rædd tækifæri til að efla samtal og samskipti við þjónustuveitendur og bæta þjónustu við íbúa á svæðinu.

Samveran í Saxnäs var mikilvægur liður í samstarfinu og undirstrikaði mikilvægi menningarvitundar og gagnkvæmrar virðingar í þróun sjálfbærrar og notendamiðaðrar þjónustu. Verkefnið nýtur góðs af samhentum og metnaðarfullum hópi þátttakenda sem vinna markvisst að því að finna lausnir sem styðja við sjálfsumönnun og velferð í dreifðum byggðum.

05309603 9d6e 4ac9 ae45 2ce297693bd4
db9a6c3a 9456 430e 9f45 6ca4d5878c92 1
3dc554df f84d 4a4c 9c54 e003c6298795 1
image 2

SelfCare

Fleiri fréttir

Mynd: HSN

Lyfjaskammtarar bæta öryggi og sjálfstæði í heimahjúkrun

Notkun lyfjaskammtara hefur reynst mikilvæg viðbót í heimahjúkrun og styður við sjálfstæða búsetu fólks í eigin heimahúsum. Tækin tryggja að skjólstæðingar fái rétt lyf á réttum tíma og auka þannig… Read More »Lyfjaskammtarar bæta öryggi og sjálfstæði í heimahjúkrun

Veltek heldur áfram kynningum á velferðartæknilausnum

Veltek heldur áfram kynningum á velferðartæknilausnum

Veltek hefur undanfarið staðið fyrir reglulegum kynningarfundum þar sem fjölbreyttar velferðartæknilausnir eru kynntar fyrir áhugasömum aðilum. Fundirnir eru haldnir í gegnum Teams og eru öllum opnir sem vilja kynna sér… Read More »Veltek heldur áfram kynningum á velferðartæknilausnum